Hörður hefur kvatt vélarrúmið í Berki

Hörður Erlendsson lét af störfum sem yfirvélstjóri á Berki NK að lokinni síðustu loðnuvertíð. Hann er þó ekki hættur á sjónum og leggur stund á strandveiðar af krafti. Öll þjóðin veit núna að Bubbi Morthens varð sjötugur þann 6. júní sl. en færri vita að Hörður varð einnig sjötugur þann dag.

Metafli hjá Fjölni í maí og júní hefur verið góður

Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK hefur verið að gera það gott að undanförnu. Afli bátsins í maímánuði var 280 tonn og það er metmánuður hjá þeim Fjölnismönnum. Fyrri helming mánaðarins var veitt frá heimahöfn í Grindavík en um miðjan mánuð var haldið austur fyrir land og oftast landað í Neskaupstað en einnig á Djúpavogi.

Kynning uppgjöri 1. ársfjórðungs Síldarvinnslunnar 2026

Gunnþór Björn Ingvason forstjóri gerir grein fyrir árshlutauppgjöri Síldarvinnslunnar 2026.

SÍLDARVINNSLAN HF.

Síldarvinnslan hf. er nú eitt af stærstu og öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og byggir starfsemi sína á yfir hálfrar aldar reynslu í fiskvinnslu og útgerð. Fyrirtækið er hið umsvifamesta á Íslandi á sviði veiða og vinnslu á uppsjávartegundum og stærsti framleiðandi á fiskimjöli og lýsi á landinu.

VEIÐAR

Síldarvinnslan er einn stærsti kvótahafi á Íslandi. Aflaheimildir samstæðunnar á kvótaárinu 2022/2023 eru 220 þúsund tonn eða 52 þúsund þorskígildistonn.

VINNSLA

Síldarvinnslan er stærsti framleiðandi landsins á uppsjávarafurðum. Síldarvinnslan rekur í dag tvær fiskimjölsverksmiðjur, í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Fyrirtækið rekur hátækni fiskiðjuver í Neskaupstað og þar eru einnig stærstu frystigeymslur á landinu. Fyrirtækið rekur bolfiskvinnslur í Grindavík.

STARFSFÓLKIÐ

Síldarvinnslan er hátækni sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð. Fyrir slíkt félag er sífellt mikilvægara að ráða hæft fólk til starfa og tryggja strfsánægju þess. Félagið hefur því sett sér metnaðarfulla stefnu í starfsmannamálum sem miðar að því að skapa vinnuumhverfi sem einkennist af hvatningu, öryggi og góðum samskiptum