Línuskip Vísis með góðan afla

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK, landaði 111 tonnum í heimahöfn í Grindavík á mánudag. Línuskipið Sighvatur GK er síðan að landa um 120 tonnum í Hafnarfirði í dag. Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að þar um borð væru menn þokkalega kátir.

Febrúar var hörkumánuður hjá Fjölni

Vísir í Grindavík gerir út krókaaflamarksbátinn Fjölni og er hann minnsta skipið í Síldarvinnsluflotanum. Á Fjölni eru tvær áhafnir og er skipt um áhöfn á hálfsmánaðarfresti. Skipstjórar eru Kristinn Arnberg Kristinsson og Júlíus Magnús Sigurðsson. Heimasíðan ræddi við skipstjórana um nýliðinn febrúarmánuð

Vinnsla á loðnuhrognum hefst á morgun

Frystingu á Japansloðnu lauk í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað á laugardaginn. Að sögn Geirs Sigurpáls Hlöðverssonar rekstrarstjóra hefur vinnslan gengið einkar vel á vertíðinni. Þegar frystingunni lauk var fiskiðjuverið þrifið hátt og lágt og vinnsla á loðnuhrognum undirbúin. Að því loknu fékk starfsfólkið kærkomið vaktafrí.

Kynning 3. ársfjórðungs Síldarvinnslunnar 2025

Gunnþór Ingvason forstjóri gerir grein fyrir niðurstöðum 3. ársfjórðungs 2025.

SÍLDARVINNSLAN HF.

Síldarvinnslan hf. er nú eitt af stærstu og öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og byggir starfsemi sína á yfir hálfrar aldar reynslu í fiskvinnslu og útgerð. Fyrirtækið er hið umsvifamesta á Íslandi á sviði veiða og vinnslu á uppsjávartegundum og stærsti framleiðandi á fiskimjöli og lýsi á landinu.

VEIÐAR

Síldarvinnslan er einn stærsti kvótahafi á Íslandi. Aflaheimildir samstæðunnar á kvótaárinu 2022/2023 eru 220 þúsund tonn eða 52 þúsund þorskígildistonn.

VINNSLA

Síldarvinnslan er stærsti framleiðandi landsins á uppsjávarafurðum. Síldarvinnslan rekur í dag tvær fiskimjölsverksmiðjur, í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Fyrirtækið rekur hátækni fiskiðjuver í Neskaupstað og þar eru einnig stærstu frystigeymslur á landinu. Fyrirtækið rekur bolfiskvinnslur í Grindavík.

STARFSFÓLKIÐ

Síldarvinnslan er hátækni sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð. Fyrir slíkt félag er sífellt mikilvægara að ráða hæft fólk til starfa og tryggja strfsánægju þess. Félagið hefur því sett sér metnaðarfulla stefnu í starfsmannamálum sem miðar að því að skapa vinnuumhverfi sem einkennist af hvatningu, öryggi og góðum samskiptum